Innheimtuferli og lög um lífeyrismál

Innheimtuferli
Ef greiðslur hætta að berast frá launagreiðanda skal launþegi hafa samband við innheimtufulltrúa hjá Sparnaði. Launþegi fyllir út eyðublað sem heimilar Sparnaði að hefja innheimtuferli og þá er hægt að senda launagreiðanda bréf með áætlun um iðgjöld til greiðslu.

Ábyrgðarsjóður launa

Ábyrgð sjóðsins tekur til krafna sem fallið hafa í gjalddaga á síðustu 18 mánuðum fyrir úrskurðardag eða réttur hefur unnist til á því tímabili. Ábyrgð sjóðsins takmarkast við kröfur á greiðslum á allt að 4% viðbótargjaldi.

Lög nr. 88/2003 um ábyrgðarsjóð launa hafa það markmið að tryggja launamönnum og lífeyrissjóðum greiðslur vegna vangoldinna krafna þeirra við gjaldþrot vinnuveitanda.

Hafi sjóðsfélagi vitneskju um að iðgjöld séu vangreidd ber honum að tilkynna Sparnaði um það en slík tilkynning er forsenda þess að innheimtuferli iðgjalda hefjist.

Uppsagnir og nýir samningar
Þegar nýr samningur um viðbótarlífeyrissparnað ásamt staðfestri uppsögn frá fyrri vörsluaðila berst launagreiðanda þarf að bíða í allt að tvo mánuði áður en nýi samningurinn tekur gildi. Samkvæmt lögum má launþegi greiða 4% af launum í viðbótarlífeyrissparnað. Gæta þarf þess að einungis sé greitt 4% iðgjald því tekinn er tekjuskattur af því sem er umfram. Heimilt er að draga allt að 6% viðbótariðgjald frá tekjuskattsstofni í stað 4% á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010.

Starfslok launþega
Samkvæmt 7. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða ber launagreiðendum og sjálfstæðum atvinnurekendum að tilkynna hlutaðeigandi lífeyrissjóðum ef þeim ber ekki lengur að standa skil á lífeyrisiðgjaldi þar sem þeir hafa hætt starfsemi eða launþegar þeirra hafa látið af störfum. Slíkar tilkynningar skal senda á skilagreinar@sparnadur.is

Lög um lífeyrismál
Lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997 má finna á althingi.is

Fjármálaeftirlitið
Eftirlit með lífeyrissjóðum er í höndum Fjármálaeftirlitsins sem er sjálfstæð eftirlitsstofnun ríkisins. Helstu lög og reglugerðir um lífeyrisréttindi er að finna á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins