Lífeyristryggingar

Einstaklingar sem kjósa sér lífeyristryggingu fremur en hefðbundinn viðbótarlífeyrissparnað ávinna sér tryggingafræðileg réttindi sem viðkomandi tryggingafélag ábyrgist.

/wp-content/uploads/2009/07/icon-lifeyristryggingar.png

Lífeyristryggingar
Lífeyristryggingar eru í grundvallaratriðum hefðbundnir tryggingasamningar. Einstaklingar greiða iðgjald sem er hlutfall af launum í hverjum mánuði. Iðgjaldið myndar svo stofn sem ásamt ávöxtun kemur til útgreiðslu sem lífeyrisréttindi. Í báðum tilfellum dregst iðgjaldið frá skattskyldum tekjum þess sem greiðir og í báðum tilvikum ávaxtar viðtakandi iðgjaldið.

Munurinn felst hinsvegar í því að iðgjald sem greitt er til hefðbundinna vörsluaðila viðbótarlífeyrissparnaðar á Íslandi er í flestum tilfellum ávaxtað í einingatengdum sjóðum. Það merkir að inneign sjóðfélaga hækkar og lækkar eftir gengi á markaði hverju sinni.

Minni markaðsáhætta
Iðgjöld lífeyristryggingarinnar eru líka notuð til fjárfestinga en aftur á móti fer staða réttinda einstaklinga ekki eingöngu eftir gengi markaða. Einstaklingar sem kjósa sér lífeyristryggingu fremur en hefðbundinn viðbótarlífeyrissparnað ávinna sér tryggingafræðileg réttindi sem viðkomandi tryggingafélag ábyrgist. Ávöxtun verður því ekki neikvæð þegar markaðir fara niður. Markaðsáhættan er þar af leiðandi minni í lífeyristryggingum en í hefðbundnum viðbótarlífeyrissparnaði.

Sparnaður býður einstaklingum lífeyristryggingar Bayern-Versicherung:

Séreignartrygging er fyrir alla á aldrinum 18-58 ára.
Séreignartrygging er viðbótartryggingavernd sem tekur við iðgjöldum frá launþega og mótframlagi atvinnurekanda samkvæmt kjarasamningum.

Fáðu nánari upplýsingar um lífeyristryggingar Bayern-Versicherung með því að panta tíma hér!

Fáðu tíma í lífeyrisráðgjöf

Nafn *

Netfang *

Sími *

Póstnúmer *

Annað sem þú vilt að komi fram