Séreignartrygging (Viðbótartryggingavernd)

Séreignartrygging er viðbótartryggingavernd þar sem tekið er við iðgjöldum frá launþega og mótframlagi atvinnurekanda samkvæmt kjarasamningum.

/wp-content/uploads/2009/07/icon-lifeyristryggingar.png

Lífeyrir
Með séreignartryggingu (viðbótartryggingavernd) eiga launþegar kost á því að fá tryggðar tekjur við starfslok í formi lífeyris til æviloka. Einnig geta þeir fengið tryggingarettindi greidd út í einu lagi eða á ákveðnum árafjölda.

Fjárfestingar
Traust fjárfestingastefna tryggir að við getum reglulega veitt viðskiptavinum okkar hlutdeild í áunnum arði. Með þessu móti takmarkar Versicherungskammer Bayern hugsanlega virðisrýrnunaráhættu vegna erfiðleika hjá einstökum útgefendum.

Helstu þættir Séreignartryggingar (viðbótartryggingavernd)

  • Tryggingasamningur með tryggða lágmarksávöxtun í evrum
  • Sveigjanlegar inngreiðslur
  • Fjölbreyttir útgreiðslumöguleikar

Það sem er sérstaklega áhugavert við Séreignartryggingu

  • Launþegar sem greiða iðgjald í séreignartrygginguna (viðbótartryggingavernd) geta fengið inneign sína greidda út í formi lífeyris til æviloka en þess ber að geta að lífaldur íslendinga er einhver sá hæsti í heiminum.
  • Séreignartryggingin (viðbótartryggingavernd) er með tryggða brúttó lágmarksávöxtun í evrum sem nemur 1,75% (staða 2012) svo fremi að grunntími tryggingarinnar sé 10 ár eða lengri en það er ótvíræður kostur þar sem tilgangurinn er sá að eiga notalega daga að lokinni starfsævi.

Almennir kostir

  • Áhættudreifing þar sem séreignartryggingin er ávöxtuð í öðru hagkerfi en sú ráðstöfun ver kaupmátt tryggingaréttinda gegn verðbólgu á Íslandi
  • Mótframlag atvinnurekanda
  • Erfist að fullu
  • Ekki aðfararhæf
  • Enginn fjármagnstekjuskattur
  • Enginn eignarskattur

Stöðug ávöxtun lífeyristrygginga í evrum

Ávöxturnarsaga Lífeyristrygginga

Ávöxturnarsaga Lífeyristrygginga