Almennt um Séreignartryggingu (viðbótartryggingavernd)
Af hverju ætti ég að vera með Séreignartryggingu (viðbótartryggingavernd)?
Fyrst og fremst vegna mótframlags launagreiðanda. Að vera ekki með virkan samning um viðbótartryggingavernd jafngildir því að afþakka 2% umsamda launahækkun. Séreignartryggingin er einnig hagstæður vegna skattalegs hagræðis. Séreignartrygging Bayern-Versicherung er sveigjanleg og þægileg leið til þess að auka ráðstöfunartekjur á efri árum, launagreiðandi sér um að standa skil á framlagi þínu og mótframlaginu. Séreignartrygging er ákveðið form viðbótartryggingaverndar sem uppfyllir lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997
Af hverju er Séreignartryggingu betri en annar langtímasparnaður?
Mótframlag launagreiðanda gerir viðbótartryggingavernd ávallt hagstæðasta kostinn sem völ er á. Um viðbótartryggingavernd gilda einnig mjög hagstæðar skattareglur þar sem hvorki er greiddur erfða né fjármagnstekjuskattur af honum, gagnstætt almennum sparnaði og tekjuskattsgreiðslum er frestað þar til við útborgun. Þetta er einstaklega þægilegt fyrirkomulag þar sem launagreiðandi stendur skil á iðgjöldum í trygginguna. Séreignartryggingin inniheldur tryggingaréttindi sem erfast skv. erfðalögum.
Hversu hátt iðgjald má leggja í Séreignartryggingu?
Leyfilegt er undir venjulegum kringumstæðum að leggja fyrir 2% – 4% af heildarlaunum og á móti kemur 2% framlag frá atvinnurekanda. Hinsvegar borgar sig ekki að greiða meira en 2% í eigið framlag vegna þess að ekki fæst skattfrestun á iðgjöldum eigin framlags yfir 2%.
Er Séreignartryggingin eingöngu hagstæð fyrir ungt fólk?
Nei. Mótframlagið gerir Séreignartryggingu hagstæðan fyrir alla aldurshópa.
Hverjir eru helstu kostir Séreignartryggingu?
Mótframlag launagreiðanda er ótvírætt helsti kosturinn ásamt skattalegu hagræði sem felst í frestun tekjuskatts af framlagi þínu og mótframlagi þar til að útgreiðslu réttinda kemur. Enginn fjármagnstekjuskattur er greiddur af viðbótartryggingavernd, gagnstætt því sem tíðkast með almennan sparnað. Séreignartrygging innifelur tryggingaréttindi og erfist skv. erfðalögum. Séreignartryggingin er ekki aðfararhæf eins og almennur sparnaður. Þú hefur ávallt frjálst val um vörsluaðila eða tryggingafélag og þú getur flutt réttindi á milli vörsluaðila, yfirleitt þér að kostnaðarlausu en mikilvægt er þó að kynna sér hvort slíkur flutningur hafi kostnað í för með sér. Umfram allt er Séreignartryggingin ákaflega þægilegt fyrirkomulag þar sem launagreiðandi sér um að standa skil á iðgjöldum til vörsluaðilans eða tryggingafélags sem þú hefur falið að gæta hagsmuna þinna. Ábyrgðarsjóður launa ábyrgist greiðslur komi til gjaldþrots launagreiðenda og innheimta iðgjalda er tryggingataka að kostnaðarlausu.
Hvernig get ég fylgst með tryggingaréttindum mínum?
Þú færð send yfirlit frá okkur tvisvar á ári.
Get ég flutt réttindin mín á milli vörsluaðila ?
Já þitt er valið. Það er einfalt að flytja sig yfir í Séreignartryggingu Bayern Versicherung – hafðu samband við ráðgjafa Sparnaðar sem sjá um flutninginn þér að kostnaðarlausu.
Hvenær get ég tekið út tryggingaréttindin mín?
Heimilt er að taka réttindi út þegar 60 ára aldri er náð.
Getur Séreignartryggingin skert bætur úr almannatryggingakerfinu?
Eftir 1.janúar 2009 munu greiðslur úr Séreignartryggingu ekki hafa áhrif á greiðslu tekjutryggingar frá Tryggingastofnun ríkisins.
Er Séreignartryggingin óhagstæð þar sem tekjuskattur er greiddur af ávöxtun við útgreiðslu?
Nei, Séreignartryggingin er alltaf hagstæðari en almennur sparnaður vegna þess að ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af ávöxtunartekjum. Einnig lækkar tekjuskattur í þeim tilfellum þar sem persónuafsláttur er nýttur við útborgun. Þess misskilnings hefur gætt að viðbótartryggingavernd sé óhagstæðari en almennur sparnaður þar sem tekjuskattur er greiddur bæði af inneign og ávöxtun inneignar við útgreiðslu en eingöngu greiddur fjármagnstekjuskattur af ávöxtunartekjum almenns sparnaðar. Því má ekki gleyma að hefðbundinn sparnaður er greiddur af launum eftir tekjuskatt en Séreignartryggingin er greidd fyrir skatta. Þannig er búið að greiða tekjuskatt af hefðbundnum sparnaði og síðan er greiddur fjármagnstekjuskattur af vaxtatekjum við viðbótar. Hins vegar er einungis greiddur tekjuskattur af Séreignartryggingu en enginn fjármagnstekjuskattur af vaxtatekjum.
Hvað verður um réttindin mín við fráfall?
Séreignartrygging erfist skv. erfðalögum. Hlutur eftirlifandi maka er 2/3 af tryggingaréttindum og hlutur barna er 1/3. Þeir sem erfa slík réttindi geta tekið þau út án takmarkana. Ef tryggingataki á hvorki maka né börn þegar hann fellur frá renna réttindin til dánarbús hans. Séreignartryggingin er tekjuskattsskyld.
Er heimilt að taka réttindin út vegna örorku?
Já, ef tryggingataki verður fyrir varanlegri örorku er heimilt að taka réttindin út skv. ákveðnum reglum.





