Spurt og svarað

Hvað er sérstakt við Séreignartryggingu Bayern-Versicherung?
Séreignartryggingin er með tryggða lágmarksávöxtun þannig að réttindi tryggingataka í evrum skerðast ekki vegna markaðsáhættu. Séreignartryggingin býður þann valmöguleika að fá lífeyri greiddan til æviloka, þar sem tryggingataki fær greitt út úr tryggingunni út ævina, en ekki í takmarkaðan tíma eins og tíðkast hjá mörgum íslenskum lífeyrissjóðum. Þess ber að geta að slíkur lífeyrir getur verið mikill kostur þar sem Íslendingar ná einna hæstum lífaldri í veröldinni.

Hver er kostnaðurinn við séreignartryggingu Bayern-Versicherung?
Sjá nánar í skilmálum tryggingarinnar.

Hvaða útgreiðslumöguleikar eru í boði hjá Bayern-Versicherung?
Bayern-Versicherung býður sömu kosti og venjulega eru í boði, auk lífeyris til æviloka. Þannig gefst kostur á að fá tryggingaréttindin greidd í einu lagi við 60 ára aldur, í hlutagreiðslum eða sem lífeyri til æviloka.

Er ég örugg/ur hjá Bayern-Versicherung?
Saga Versicherungskammer Bayern nær aftur til ársins 1811 og hefur staðið af sér allar kreppur síðan. Samkvæmt skilmálum tryggingasamnings þíns skuldbindur Bayern-Versicherung sig til þess að tryggja þér brúttó 1,75% árlega lágmarksávöxtun í evrum (staða 2012) svo lengi sem grunntími tryggingarinnar sé minnst 10 ár. Ef Bayern-Versicherung tekst ekki að standa við skuldbindingar sínar við þig sér ábyrgðarsjóður tryggingafélaga í Þýskalandi um að staðið verði við tryggingasamning þinn.

Hvernig er skattamálum háttað?
Greiddur er íslenskur tekjuskattur við útgreiðslu lífeyrisréttinda. Enginn annar skattur er tekinn af réttindum þar með talinn fjármagnstekjuskattur.