Reiknivél fyrir gengistryggð lán

Sparnaður hefur útbúið reikniverk þar sem hægt er að setja inn forsendur bíla- og fasteignalána sem upprunalega voru tekin í erlendri mynt og reikna út áhrifin sem dómur hæstaréttar 15. febrúar 2012 hefur á vaxtagreiðslur

Reikniverkið reiknar vexti miðað við þá vexti sem settir voru í samninginn og lægstu óverðtryggða vexti Seðlabanka sem ákveðið var með lögum að ættu að vera á gengislánum.

Dómur hæstaréttar kveður á að samningsvextirnir eigi að gilda frá upphafi lánstímans til 30. júní 2010.

Þar sem samningsvextir eru í svotil öllum tilfellum lægri en vextir Seðlabanka þá kemur fram mismunur sem fjármögnunarfyrirtækin þurfa að greiða viðskiptavinum.
Sá mismunur er fundinn út í reikniverkinu.

Útreikningurinn er eingöngu til upplýsingar. Sparnaður ehf. ber ekki ábyrgð á því að niðurstaða sé rétt þar sem einstaklingar hafa hugsanlega nýtt sér úrræði sem kynnu að koma til frádráttar á móti leiðréttingu bílaláns. Skilmálar bílalánasamnings gilda um viðskipti lánþega við lánveitanda og því ber Sparnaður ehf. ekki ábyrgð á niðurstöðu útreikninga. Útreikningarnir eiga eingöngu að gefa mynd af hugsanlegri niðurstöðu miðað við þær forsendur sem rætt hefur verið um.

Hér að neðan getur þú niðurhaldað reikniverkinu en það er gert í excel. Jafnframt geturðu með því að ýta á hlekkinn hér að neðan pantað tíma hjá ráðgjafa sem reiknar þetta út fyrir þig að kostnaðarlausu.

Dæmi um útreikning á gengistryggðu láni (pdf 163kb)

Reiknivél fyrir gengistryggð lán (Excel skjal 10Mb)

Fáðu tíma til að koma í uppgreiðsluþjónustu

Nafn *

Netfang *

Sími *

Póstnúmer *

Annað sem þú vilt að komi fram