Sparnaður ehf

Sparnaður ehf er ráðgjafarfyrirtæki sem hefur sett sér það markmið að auka samkeppni á fjármálamarkaði með nýjungum í ráðgjöf og hugsun.

http://sparnadur.heidi.1984.is/wp-content/uploads/2009/06/icon-sparnadur.png

Sparnaður – bylting í fjármálaþjónustu
Sparnaður ehf er ráðgjafarfyrirtæki sem hefur sett sér það markmið að auka samkeppni á fjármálamarkaði með nýjungum í ráðgjöf og hugsun. Sparnaður fer nýjar leiðir í ráðgjöf og veitir aðstoð við að greiða niður skuldir og auka eignamyndun og fjárhagslegt öryggi viðskiptavina.

Sparnaður veitir ekki aðeins ráðgjöf heldur býður viðskiptavinum einnig leiðir til að ná markmiðum sínum með einstaklega góðum lausnum á fjármálamarkaði.

Sparnaður leiðir saman nýja hugsun í fjármálaþjónustu, aldagamla reynslu frá Þýskalandi og áræði í samkeppni við öflugustu fjármálafyrirtæki á landinu.

Sparnaður verður til – draumur verður að veruleika
Þann 16. ágúst 2007 hófst formlegt samstarf þeirra Gests Breiðfjörðs Gestssonar og Davíðs Tryggvasonar hjá Markaðsafli ehf og Ingólfs H. Ingólfssonar hjá Fjármálum heimilanna ehf (spara.is). Þar með rættist draumurinn um að sameina hugsjónina um neytendavæna fjármálaþjónustu og öflugt ráðgjafarfyrirtæki og úr varð fyrirtækið Sparnaður ehf.

Með samstarfi Sparnaðar við þýska tryggingarfélagið Versicherungskammer Bayern hefst nýr kafli í íslenskri viðskiptasögu.

Þýsk gæði, öryggi og traust
Versicherungskammer Bayern var stofnað árið 1875 af Lúðvík II. konungi Bæjaralands, sem er einna þekktastur í sögunni fyrir að reisa fjöldann allan af glæsilegum höllum um allt land. Fyrsta verkefni tryggingafélagsins var auðvitað að brunatryggja þessar konunglegu eignir. Versicherungskammer Bayern var opinbert fyrirtæki til ársins 1996 en þá komst fyrirtækið í eigu þýsku sparisjóðanna. Félagið hefur yfir 8.200 starfsmenn í sinni þjónustu en í þeim hópi eru meðal annars tryggingafræðingar, hagfræðingar, lögfræðingar, verkfræðingar, eðlisfræðingar, stærðfræðingar, fjármálasérfræðingar ásamt vísindamönnum. Versicherungskammer Bayern hefur ríflega 5.500 milljarða evra í iðgjöld á ári. Versicherungskammer Bayern bjóða upp á 360 gráðu fjármálaþjónustu í Þýskalandi . Þýskar reglugerðir nýtast Íslendingum vel í þessu samstarfi, eins og varðandi lífeyrisafurðir, en samkvæmt Þýskum lögum þá fá viðskiptavinir að lágmarki 2,25% (brúttó) tryggða ávöxtun svo fremi sem grunntími tryggingarinnar eru 10 ár eða lengur.

Sparnaður leiðir saman nýja hugsun í fjármálaþjónustu, aldagamla reynslu frá Þýskalandi og áræði í samkeppni við öflugustu fjármálafyrirtæki á landinu.