Sparnaður ehf
- Samstarfsaðilar
- Starfsfólk Sparnaðar
- Fréttir
- Leiðarljós Sparnaðar
- Starfsstöðvar
- Störf hjá Sparnaði
- Starfsmannastefna
- Stjórn
- Starfsmenntaáætlun
- Hafðu samband
- Fáðu tíma í ráðgjöf
- Póstlisti Sparnaðar
FRELSI er eins og hamingja, við vitum ekki nákvæmlega hvað það er en finnum strax fyrir því ef á það skortir. Neikvæð fjárhagsstaða heimilisins sviptir fjölskylduna möguleikum á að njóta þess sem hún á eða eignast það sem hana vantar. Leiðina til þess að öðlast frelsi á ný er að finna í uppgreiðsla lána og í uppbyggingu sparnaðar.
ÖRYGGI er hverri manneskju nauðsyn en ábyrgðin færist í auknum mæli frá samfélaginu yfir á einstaklinginn. Með sparnaði er hægt að bregðast við þessari þróun og treysta öryggisnet fjölskyldunnar bæði í nútíð og framtíð. Það geta allir sparað og við hjálpum þér við það.
ÁVÖXTUN eigna og sparnaðar eykur frelsi okkar til athafna og öryggi okkar í lífinu. Ávöxtun er uppskera erfiðisins. Við eyðum stórum hluta ævinnar í að afla tekna sem við eigum skilið að ávaxti sig vel.
Ráðgjafarþjónusta Sparnaðar í Holtasmára 1 í Kópavogi er opin frá 09:00 til 21:00 mánudaga til fimmtudaga og til 16:00 á föstudögum.
Ráðgjafarþjónusta Sparnaðar að Kaupvangsstræti 4 á Akureyri er opin frá 09:00 til 17:00 mánudaga til fimmtudaga en frá 09:00 til 16:00 á föstudögum.
Þú getur pantað tíma með því að hringja í Sparnað, holtasmára í síma 577-2025 eða í Sparnað, kaupvangsstræti í síma 512-8060 en einnig er hægt að senda tölvupóst á sparnadur@sparnadur.is


