Spara.is

Sparnaður er í samstarfi við spara.is vegna hugbúnaðarlausna fjármála heimilanna.

http://sparnadur.heidi.1984.is/wp-content/uploads/2009/11/spara-is-logo.png

Einn góðan veðurdag, vorið 2000, tók konan mín mig tali og sagðist vera búin að fá nóg af stöðugum peningaáhyggjum. Tekjur okkar voru að vísu þokkalegar, við áttum hús og tvo bíla og börnin uppkomin, en þrátt fyrir þessa góðu stöðu náðu endar varla saman. Þetta var næstum sama baslið og við upphaf búskaparins. VISA kom okkur alltaf jafn mikið á óvart um hver mánaðarmót, skuldirnar virtust ekkert minnka, bankinn átti húsið þegar að var gáð og bíllinn var ekki beysinn. Eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Það var þá sem við ákváðum að skoða fjármálin frá upphafi til enda og hlífa okkur hvergi. Okkur til mikillar undrunar sáum við að vaxandi skuldir voru samfara auknum tekjum. Þetta gat ekki staðist, eitthvað var að. Við notuðum næstu tvö árin til að greina stöðuna og læra af reynslunni, nýta menntun okkar og fræðast af öðrum og þróa með okkur nýja hegðun í fjármálum.

Vinir og vinnufélagar fóru að taka eftir breytingum hjá okkur, minni peningaáhyggjum og auknum fjárráðum. Við fórum að segja öðrum frá því sem við vorum að gera og konan mín var beðin um að halda fyrirlestra í saumaklúbbum. Í byrjun desember 2002 héldum við fyrsta námskeiðið um fjármál heimilisins fyrir almenning, það bar heitið “Úr mínus í plús”.

Fjögur námskeið voru haldin fram í mars 2003, sem tæplega 100 manns sóttu. Við fengum mikilvæga reynslu og verðmæta þekkingu frá þeim sem sóttu námskeiðin. Fyrirtæki, félagasamtök og sveitarfélög leituðu til okkar með fyrirspurnir og óskir um námskeið og nokkrir fjölmiðlar veittu námskeiðunum athygli og sögðu frá þeim.

Það kom þægilega á óvart að sjá alla aldurshópa og fólk hvaðanæva úr þjóðfélaginu sækja námskeiðin. Þetta staðfesti að það eru ekki tekjurnar sem skipta máli um afkomuna heldur hvernig útgjöldunum er stýrt. Ungt fólk, allt niður í 16 ára, sótti námskeiðin og sumir komu með foreldrum sínum. Skólarnir virðast því miður senda nemendur sína út í lífið án nokkurrar þekkingar á meðferð peninga eða rekstri heimilis. Þrír grunnskólakennarar sátu þó eitt námskeiðið með það að markmiði að vinna kennsluefni fyrir skólann sinn.

Það sem í upphafi var viðsnúningur í eigin fjármálum var orðið að áhugaverðu efni fyrir fjölda fólks. Við ákváðum því að fylgja þessu eftir og settum saman námskeið sem höfðar til mismunandi aldurshópa og fullnægir þörfum einstaklinga jafnt sem fyrirtækja og stofnana. Þetta er í stuttu máli sagan á bakvið Fjármál heimilanna ehf.

Ingólfur H. Ingólfsson
www.spara.is