Sparnaður ehf
- Samstarfsaðilar
- Starfsfólk Sparnaðar
- Fréttir
- Leiðarljós Sparnaðar
- Starfsstöðvar
- Störf hjá Sparnaði
- Starfsmannastefna
- Stjórn
- Starfsmenntaáætlun
- Hafðu samband
- Fáðu tíma í ráðgjöf
- Póstlisti Sparnaðar
Tryggingar og ráðgjöf ehf. er löggilt vátryggingamiðlun sem starfar undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins skv. lögum og reglugerðum settum um slíka starfsemi. Eigandi fyrirtækisins er Hákon Hákonarson og framkvæmdastjóri er Guðmundur Magnússon, löggiltur vátryggingamiðlari. Hjá T&R starfa yfir þrjátíu einstaklingar með langa starfsreynslu og góða fagþekkingu á sviði vátrygginga. Viðskiptamannastofn T&R telur um þessar mundir liðlega 35 þúsund viðskiptavini, með samtals yfir 60 þúsund samninga.
T&R er vátryggingamiðlun og á ekki í neinu eignasambandi við tryggingafélög. Markmið T&R er fyrst og fremst að gæta hagsmuna viðskiptavinarins. Hlutverk vátryggingamiðlara okkar er að meta vátryggingaþörf viðskiptavinarins, ráðleggja og leita hagstæðustu tilboða í þá vernd sem viðskiptavinurinn velur. Ef viðskiptavinurinn verður fyrir tjóni, gætum við réttar hans. Með reglubundnu millibili setjum við okkur síðan í samband við viðskiptavini okkar til að endurmeta vátryggingavernd þeirra, fara yfir þá samninga sem þegar eru í gildi og athuga hvort þörf eða vilji sé til að breyta eða bæta þar um.


