Starfsmenntaáætlun

Starfsmenntaáætlun Sparnaðar ehf. og Versicherungskammer Bayern miðast við það að ráðgjafar sem hafa umboð til samningagerðar um lífeyristryggingar hafi faglega þekkingu á viðfangsefninu.

http://sparnadur.heidi.1984.is/wp-content/uploads/2009/06/icon-uppgreidslukerfi-stort.png

Stjórn Sparnaðar ehf. vildi innleiða starfsmenntaáætlun sem Versicherungskammer Bayern notar á sínum heimamarkaði og er til fyrirmyndar í alla staði.

Mikilvægt er fyrir ráðgjafarfyrirtæki eins og Sparnað ehf. að vinna samkvæmt gildum og siðareglum þar sem horft er til framtíðar á íslenskum markaði.

Starfsemi Sparnaðar ehf. fyrir hönd Versicherungskammer Bayern byggist á þekkingu fyrst og fremst, en einmitt þess vegna er það frumskilyrði að starfsmennirnir uppfylli bæði kröfur reglugerða og væntingar viðskiptavina sinna.

Starfsmenntaáætlunin er byggð upp í áföngum og erfiðleikastigum. Þannig er ýtt undir metnað manna í starfi, en áætlunin og prófskírteinin gilda aðeins í eitt ár í senn vegna stöðugra breytinga sem verða á regluverki hér heima og í Þýskalandi.

Þekkingunni er stöðugt haldið við svo að viðhalda megi gæðum í starfi. Allir ráðgjafar fá lesefni og fara í beinu framhaldi í stöðupróf þar sem hver og einn er metinn. Í framhaldi af því þurfa þeir svo að þreyta próf innan ákveðins tímaramma sem settur er í samráði við Versicherungskammer Bayern í Þýskalandi.

Þekkingunni er stöðugt haldið við svo að viðhalda megi gæðum í starfi.