Starfsmannastefna

Sparnaður er traustur, framsækinn og skemmtilegur vinnustaður með áreiðanleika og fagmennsku að leiðarljósi.

http://sparnadur.heidi.1984.is/wp-content/uploads/2009/07/icon-storf.png

Starfsfólk Sparnaðar ehf. vinnur fjölbreytt störf og því er bakgrunnur þess ólíkur, allt eftir því hvernig störfum það sinnir. Um helmingur starfsmanna Sparnaðar ehf. er með háskólamenntun að baki en við ráðningar nýrra starfsmanna er einnig horft til reynslu og persónueinkenna umsækjenda. Einnig eru gildi fyrirtækisins höfð að leiðarljósi við ráðningu nýrra starfsmanna. Eins og gefur að skilja eru margir starfsmenn okkar með menntun í viðskiptafræði og öðrum greinum sem tengjast fjármálum.

Gildi Sparnaðar

  • Traust, áreiðanleiki og ábyrgð í orðum og gerðum.
  • Fagmennska í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi þjónusta.
  • Metnaður fyrir árangri í starfi.

Starfsmannaval
Sparnaður leitast við að ráða starfsfólk sem:

  • Er traust og áreiðanlegt.
  • Skarar fram úr á sínu sviði.
  • Miðlar þekkingu.
  • Er útsjónarsamt.
  • Er sveigjanlegt og vinnur vel í hópi.
  • Hefur þjónustulund og eflir heildina.
  • Við val á starfsmönnum eru starfslýsingar hafðar til hliðsjónar.

Hlutverk
Hlutverk starfsmanna Sparnaðar ehf. er að aðstoða og fræða einstaklinga sem vilja ná raunverulegum árangri í heimilisrekstri. Aðallega eru þetta leiðir sem minnka fjármagnskostnað heimilanna og tryggja þeim góða fjárhagslega framtíð.

Fræðsla- og endurmenntunarstefna
Fyrir ráðgjafarfyrirtæki eins og Sparnað ehf. er mikilvægt að hafa yfir að ráða hæfu starfsfólki sem er ánægt í starfi. Stefna fyrirtækisins er að skapa gott og krefjandi starfsumhverfi sem laðar að sér hæft og metnaðarfullt starfsfólk sem vill þróast innan fyrirtækisins. Því er lögð áhersla á að efla hæfni starfsfólks með því að bjóða því fjölbreytta fræðslu og tækifæri til starfsþróunar. Mikilvægi þekkingar er viðurkennt innan Sparnaðar og því er fræðsla og þjálfun skipulögð stefna fyrirtækisins og litið á slíkt sem fjárfestingu í þágu bættrar þjónustu við viðskiptavini.

Jafnréttismál
Sparnaður gætir fyllsta jafnréttis milli kvenna og karla. Hver starfsmaður á að vera metinn og virtur að verðleikum. Markmiðið er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla og jöfnum tækifærum einstaklinga, óháð kynferði.

Móttaka nýliða
Með skipulegri móttöku nýliða er nýjum starfsmönnum gert kleift að ná fljótt og vel tökum á störfum sínum. Lögð er áhersla á að kynna fyrirtækið og starfsemi þess fyrir starfsmönnum og gera þeim grein fyrir réttindum sínum, skyldum og ábyrgð.

Fjölskyldustefna
Sparnaður styður starfsmenn við að samræma starfsskyldur og fjölskyldulíf.

Starfsskilyrði
Sparnaður leggur sig fram við að tryggja öllum starfsmönnum gott starfsumhverfi sem fullnægir ströngustu kröfum um öryggi, hollustu og vinnuvernd.

Traust, áreiðanleiki og ábyrgð í orðum og gerðum. Fagmennska í vinnubrögðum. Framúrskarandi þjónusta.