Sparnaður ehf. vill koma eftirfarandi áréttingu á framfæri vegna fréttaflutnings RÚV af lífeyri í erlendri mynt.


01 July 2011

„Sparnaður ehf. vill árétta að félagið hefur umboð til sölu þýskra lífeyristrygginga hér á landi. Frá upphafi gjaldeyrishaftanna hefur starfsemi félagsins í einu og öllu farið fram með vitund og heimild Seðlabanka Íslands, en Seðlabankinn hefur ítrekað staðfest að gjaldeyrisfærslur vegna tryggingaiðgjalda séu í fullu samræmi við gjaldeyrisreglur bankans. Sparnaður telur að Landssamband Lífeyrissjóða sé að villa um fyrir neytendum þegar sambandið jafnar saman tryggingum og fjárfestingum.“

Sparnaður ehf. vill einnig koma því á framfæri að lífeyristryggingar sem Sparnaður ehf. býður eru frá Versicherungskammer Bayern en félagið fagnar 200 ára afmæli  á árinu 2011 en 240.000 viðskiptavinir og velunnarar mættu á afmælishátíðina til að fagna þessum áfanga með Bayern. Saga félagsins nær aftur til ársins 1811 þegar tryggingafélagið hóf að brunatryggja byggingar og hefur það starfað sem tryggingafélag allar götur síðan. Margar kynslóðir og milljónir þjóðverja hafa valið Versicherungskammer Bayern til þess að tryggja sig og sína fyrir fjárhagslegum áföllum.