Allianz söluumboð brýtur lög með villandi upplýsingum
Neytendastofa hefur úrskurðað að Allianz hafi brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með því að nota villandi samanburð á lífeyristryggingum Allianz söluumboðs og Sparnaðar / Bayern-Versicherung.
Sparnaður kvartaði til Neytendastofu yfir samanburði og útreikningi Allianz á kostnaði og ávinningi af viðbótarlífeyrissparnaði Allianz og Sparnaðar. Athugasemdir Sparnaðar snéru bæði að framsetningu samanburðarins sem og útreikningum Allianz..
Neytendastofa féllst á flestar athugasemdir Sparnaðar og telur samanburðinn villandi fyrir neytendur og að Allianz söluumboð hafi brotið gegn ákvæðum laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu í nokkrum liðum.
Ingólfur H. Ingólfsson
Stjórnarformaður Sparnaðar ehf. (Sparnaðar)
Sími: 6902330
Gestur B. Gestsson
Framkvæmdarstjóri Sparnaðar ehf. (Sparnaðar)
Sími: 822-0797




