Bayern Líf – Versicherungskammer Bayern


29 January 2009

Eru lífeyristryggingar hjá tryggingasamstæðunni Bayern Líf – Versicherungskammer Bayern öruggar?
Já. Viðskiptavinir sem gert hafa við okkur vátryggingarsamning með venjulegum skilmálum eru varðir gegn tapi. Ofan á hina tryggðu árlegu vexti bætist arðshlutdeild og þar sem lífeyristryggingar heyra í öllu falli undir langtíma fjárfestingu eru þær þannig upp byggðar að unnt er að jafna út skammtíma lækkanir á arði. Mikilvægasti áhrifaþátturinn varðandi ávöxtun hefðbundinna lífeyristrygginga er hinn reglulegi vaxtahagnaður. Þess vegna hefur lágur vaxtastuðull í langan tíma miklu meiri áhrif heldur en skammtíma sveiflur á fjármálamarkaði.

Er möguleiki á að þegar innlagður arður af hefðbundnum líftryggingum geti tapast?
Nei. Regluleg arðshlutdeild er fyrir hvern tryggingarsamning reiknuð út og greidd inn á tryggingarsamninginn árlega. Við þennan útborgaða arð bætast svo hinir tryggðu vextir. Einnig þessi arður á rétt á arðshlutdeild. Úthlutun arðsins á grundvelli útreiknaðrar arðshlutdeildar hefur þess vegna í för með sér virðisauka vátryggingarinnar á hverju ári og er hann tryggður um alla framtíð. Jafnvel þótt breyting kunni að verða á prósentuupphæð greiddrar arðshlutdeildar er ekki hægt að lækka þær upphæðir sem þegar hafa verið lagðar inn.

Hversu öruggir eru vátryggingarskilmálar ,,Sparnaðartryggingu´´ (FlexVorsorge Plus)?
Við undirritun vátryggingarsamningsins ,,Sparnaðartryggingu´´ getur viðskiptavinurinn sjálfur ákveðið ábyrgðarstig sitt (milli 100% og 25%, miðað við innborguð iðgjöld) og þar með sjálfur ákveðið áhættu sína og hagnaðarvonir. Þeir sem leggja mesta áherslu á öryggi fjárfestingar sinnar velja fjárfestingarform með 100% ábyrgð. En þeir viðskiptavinir sem hafa valið lægra ábyrgðarstig þurfa vegna sérstaklega yfirvegaðrar samsetningar eignasafnsins heldur ekki að örvænta, enda hefur hámarksávaxtaða heildarfjárfestingin (ROK) einmitt staðið hið óvenjumikla gengisfall á síðustu vikum frábærlega vel af sér og lækkað tiltölulega lítið að verðgildi. Þannig hefur yfirvegað hlutfall hámarksávöxtuðu heildarfjárfestingarinnar milli möguleika og áhættu sannað gildi sitt og höfðar hún því eftir sem áður til þeirra fjárfesta sem vilja varanlega ávöxtun til langs tíma með hóflegri áhættu.

Sparnaðartryggingin (FlexVorsorge Plus) er eftir sem áður lífeyristrygging með algjöra sérstöðu á markaðnum. Vegna mismunandi ábyrgðarstigsmöguleika höfðar þessi trygging sérstaklega til þeirra viðskiptavina sem trúa heilt yfir tekið og til langs tíma á möguleikana á fjárfestingamörkuðum, enda þótt þeir kunni að vera dálítið hikandi nú í augnablikinu.

Væri skynsamlegt að segja lífeyristryggingunni upp fyrir umsaminn tíma?
Nei! Uppsögn lífeyristrygginga áður en hún rennur út þýðir fjárhagslegt tap fyrir hvern einasta viðskiptavin. Sparnaðartryggingin þín er í öruggri geymslu og góðum höndum hjá Tryggingasamstæðunni Bayern.

Er öruggt að tryggingartakar njóti arðshlutdeildar á árinu 2008 eða er ávöxtun lífeyristryggingarinnar í hættu?
Þann arð ásamt vöxtum sem kemur til útborgunar verða tryggingarfélögin að leggja til hliðar fyrir lok hvers tryggingarárs. Þannig hafði arðurinn fyrir árið 2008 verið lagður til hliðar fyrir árslok 2007 og er þar með algjörlega tryggður. En einmitt þess vegna er heldur ekki enn hægt að segja til um stöðuna í árslok 2008. Aftur á móti eru hinar tryggðu vaxtagreiðslur í öllu falli öruggar einnig á komandi árum.

Er útborgun á gjaldföllnum lífeyristryggingum eða lífeyrisgreiðslum í hættu?
Nei, útborganir sem samið var um í vátryggingarsamningnum eru öruggar. Pantaðu tíma hjá ráðgjafa hér!