Frádráttarbært iðgjald lækkar úr 4% í 2% frá áramótum


10 January 2012

Tillaga stjórnvalda um að lækka frádráttarbært iðgjald launþega í viðbótarlífeyrissparnað úr 4% í 2% hefur nú verið samþykkt á Alþingi og tekur gildi um næstu áramót. Lagasetningin kallar ekki á að sjóðfélagar þurfi að breyta núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldsstofni. Launagreiðendur verða því að annast það verk að lækka sparnað launþega niður í 2% af launum. Engin breyting verður á mótframlagi launagreiðenda en það er 2% af launum skv. flestum kjarasamningum.

Launagreiðandi skal jafnframt hækka iðgjaldið á ný í 4% að þremur árum liðnum nema sjóðfélagi óski eftir að eigið framlag verði ekki hækkað aftur. Æskilegt væri að launagreiðendur héldu utan um það á markvissan hátt hjá hverjum iðgjaldið hefur verið lækkað tímabundið til að geta tryggt að framlagið hækki að nýju til samræmis við fyrirliggjandi samninga vegna launa fyrir janúar 2015.

Sjóðfélagar eru hvattir til að fylgjast vel með launaseðlum sínum til að tryggja að ekki verði misbrestur á framkvæmdinni en mikið óhagræði felst í því að greiða áfram hærra en 2% af launum í viðbótarlífeyrissparnað vegna tvísköttunar. Mikilvægt er fyrir launagreiðendur, sem standa skil á iðgjaldinu að gæta að þessum þætti við greiðslu launa eftir gildistöku laganna.