FRÉTTATILKYNNING – Vinsamleg ábending vegna umfjöllunar fréttablaðsins


29 June 2010

Sparnaður ehf. vill koma eftirfarandi áréttingu á framfæri vegna umfjöllunar fréttablaðsins á bls. 4 þann
29.06.2010 á gengistryggðum lánum og útreikninga Sparnaðar ehf. Í umfjöllun fréttablaðsins í dag eru nokkur atriði sem félagið vill benda á en þess ber að geta að þetta er vinsamleg ábending og greinilega byggður á misskilningi milli starfsmanna fréttablaðsins og starfsmanna Sparnaðar.

  • Það stendur í umræddri grein: Netverjar geti skráð sig á heimasíðu sparnaðar áður en þeir geta skoðað reiknivélina.
  • Hið rétta er: Fólk getur farið á heimasíðu Sparnaðar og pantað sér tíma og ráðgjafi aðstoðar fólk við að reikna bílalánin út fyrir viðkomandi enda hver útreikningur sjálfstæður og mismunandi eftir hverjum og einum samningi.
  • Það stendur í umræddri grein: Tölvukerfið hrundi í fyrirsögn en neðar í greininni kemur fram að um
    heimasíðu sé að ræða í tenglsum við þetta
  • Hið rétta er: Vegna álags á vefsíðu félagsins þá þurfti að setja vefinn á enn öflugri netþjón til þess að
    anna heimsóknum

Það stendur í skýringarmynd varðandi rauðu línuna: Raungreiðslur. Afnám gengistryggingar en óbreyttir vextir (samkvæmt dómi hæstaréttar)
Hið rétta á að standa við rauðu línuna: Raungreiðslur (óbreytt staða fyrir dóm Hæstaréttar)

FRÉTTATILKYNNING – Vinsamleg ábending vegna umfjöllunar fréttablaðsins