Gríðarleg ásókn í sparnaðarnámskeið hjá SPARA.IS sem er samstarfsaðili SPARNAÐAR.


29 March 2010

ÚR MÍNUS Í PLÚS Í HÁSKÓLABÍÓI Í BOÐI ATLANTSOLÍU

Atlantsolía fékk 100 sæti á námskeiðið Úr mínus í plús til þess að bjóða viðskiptavinum sínum á þriðjudaginn 23. mars. Skemmst er frá því að segja að áhuginn á námskeiðinu fór frammúr öllum væntingum og á einum sólarhring höfðu skráð sig 1.200 notendur dælulykils Atlantsolíu.

Þessi gríðarlegi áhugi á námskeiðinu Úr mínus í plús varð til þess að Atlantsolía og spara.is gerðu með sér samning um að halda annað námskeið fyrir viðskiptavini Atlantsolíu. Til þess að tryggja að sem flestir komist að verður námskeiðið haldið í stóra salnum í Háskólabíói, þriðjudaginn 30. mars kl 18:00 – 22:00.

Á námskeiðinu Úr mínus í plús mun viðskiptavinum Atlantsolíu verða kennt að nýta peninga sína enn betur en hingað til, að verða skuldlausir á undraskömmum tíma og spara sér milljónatugi í vexti og verðbætur og að byggja upp sparnað og eignir með einföldum og áhrifaríkum hætti. Og meira en það, á námskeiðinu verður farið í fjársjóðsleit og kennt hvernig hægt sé að hafa gaman af peningunum með nýju fjárhagskerfi fyrir heimilin, Epli & appelsínum.

Tryggið ykkur sæti á þennan stórviðburð í Háskólabíói og skráið ykkur strax á www.atlantsolia.is