Kynningarefni um tryggingafélagið Versicherungskammer Bayern


04 June 2011

Búið er að setja inn á vefinn kynningarefni á íslensku um tryggingafélagið Versicherungskammer Bayern.

Versicherungskammer Bayern tilheyrir sambandi fjármálafyrirtækja þýsku sparisjóðanna (Sparkassen-Finanzgruppe) sem er öflugasti samstarfsvettvangur á sviði fjármálaþjónustu í Þýskalandi. Um 50 milljónir viðskiptavina og um 650 þátttökufyrirtæki eru með samtals um 3.600 milljarða evra í veltu. Í sambandi fjármálafyrirtækja þýsku sparisjóðanna er Versicherungskammer Bayern stærsta opinbera tryggingafélagið og sameinar kjarnasviðin „fjárhagsöryggi“ og „tryggingarvernd“. Sögu Versicherungskammer Bayern má rekja til ársins 1811.

Hægt er að skoða kynningarefnið hér

Kynningarefni um tryggingafélagið Versicherungskammer Bayern