Versicherungskammer Bayern óskar nýútskrifuðum ráðgjöfum Sparnaðar ehf. til hamingju.
Hópur starfsmanna tryggingaumboðsins Sparnaðar ehf. lauk nýlega prófi hjá þýsku tryggingasamsteypunni Versicherungskammer Bayern. Í dag hafa 33 starfsmenn lokið prófi á framhaldsstigi og þar af 9 starfsmenn á efsta stigi.
Starfsmenntaáætlun Sparnaðar ehf. og Versicherungskammer Bayern eða Bayern Líf miðast við að ráðgjafar sem hafi umboð til sölu á lífeyristryggingum Bayern Líf hafi faglega þekkingu á viðfangsefninu og því er mikil áhersla lögð á þjálfun ráðgjafa.
Stjórn Sparnaðar ehf. vildi innleiða þá starfsmenntaáætlun sem Bayern Líf hefur í notkun á heimamarkaði sínum. Starfsemi Sparnaðar ehf. fyrir hönd Bayern Líf byggir á þekkingu fyrst og fremst, þess vegna er það frumskilyrði að starfsmenn félagsins gjörþekki reglugerðir og allar aðstæður á markaðnum til að uppfylla þær kröfur sem viðskiptavinir gera.
Starfsmenntáætlunin er þrepaskipt þar sem erfiðleikastigið eykst með hverju þrepi, það er gert til þess að auka metnað og gæði starfsmanna í starfi. Áætlunin og prófskírteinin gilda eingöngu í eitt ár í senn vegna reglulegra uppfærslna á reglugerðum hér og í Þýskalandi.
Um Sparnað ehf. og Bayern Líf
Sparnaður ehf. selur lífeyristryggingar fyrir Versicherungskammer Bayern undir nafninu Bayern Líf. Versicherungskammer Bayern er í hópi tíu efstu frumtryggjenda Þýskalands og er leiðandi í héruðunum Bayern og Pfalz. Versicherungskammer Bayern sem er móðurfélag Bayern Líf er jafnframt með 5.96 milljarða evra í iðgjöld á ári. Versicherungskammer Bayern er hluti af S-Finanzgruppe sem er stærsta fjármálasamsteypa veraldar.




