Reikniverk Sparnaðar sem metur áhrif dóms Hæstaréttar á gengistryggð lán hefur verið sótt 40.500 sinnum.
Reikniverk Sparnaðar sem metur áhrif dóms Hæstaréttar á gengistryggð lán hefur verið sótt 40.500 sinnum.
Á vefsíðu Sparnaðar ehf, www.sparnadur.is er reikniverk sem reiknar út áhrif dóms Hæstaréttar á gengistryggð bíla- og fasteignalán.
Stjórn Hagsmunasamtaka Heimilanna skoraði á Sparnað að opinbera reikniverk sem fyrirtækið var að þróa fyrir gengistryggð lán. Sparnaður brást strax með ánægju við áskoruninni og birti síðan reikniverkið þann 12.júlí 2010 svo að fólk gæti áttað sig betur á stöðu sinni út frá áhrifum mismunandi forsendna í reiknireglum, svo sem óverðtryggðum, verðtryggðum og óbreyttum samningsvöxtum með afnámi gengistryggingar.
Almenningur hefur tekið þessu framlagi vel og hefur reikniverkið verið sótt 40.489 sinnum á síðastliðnum tíu mánuðum. Þetta er mjög ánægjulegt, og sýnir að almenningur hefur áhuga á því sem aldrei fyrr að kynna sér sem best fjármálstöðu sína.
Gríðarlegur fjöldi hefur leitað til Sparnaðar til að fá aðstoð við að reikna út lán sín,og fá upplýsingar um leiðir til að spara háar fjárhæðir í vexti og verðbætur. Mikilvægt er að greiða svokallaðar höfuðstólsgreiðslur í réttri röð inn á lánin til þess að ná fram sem bestri niðurstöðu, óháð hagsmunum lánastofnana. Ráðgjöfina er hægt að panta á vefsíðu Sparnaðar, www.sparnadur.is
Hlekkur beint á reiknivélina er að finna hér.
Ingólfur H. Ingólfsson
Stjórnarformaður Sparnaðar
Sími 663-7100
Gestur B. Gestsson
Framkvæmdarstjóri Sparnaðar
Sími 822-0797




