METNAÐARFULLUR VIÐSKIPTAVINUR
“Microsoft Exchange í kerfisleigu er kjörin lausn til að auðvelda starfsfólki fyrirtækja að vinna sem ein heild í eigin vinnuumhverfi, óháð staðsetningu. Sparnaður er ungt og metnaðarfullt fyrirtæki og það er alltaf spennandi áskorun að veita kröfuhörðum viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu,” segir Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr.
Innifalið í Microsoft Exchange-lausninni er að notendur fá aðgang að tölvupósti, dagatali, tengiliðalista, fundarboðum og skráasvæði, hvar og hvenær sem er. Einnig er boðið upp á tölvupóst og dagatal í farsíma. Með kerfisleiguhögun eru notendur að vinna í eigin vinnuumhverfi, gögnum og hugbúnaði, en gera það í miðlægu tölvuumhverfi, sem er hýst og vaktað á búnaði hjá Skýrr allan sólarhringinn.
UM SPARNAÐ EHF.
Sparnaður ehf. er ráðgjafafyrirtæki, sem hefur sett sér það markmið að auka samkeppni á fjármálamarkaði með nýjungum í ráðgjöf, vörum og hugsun. Sparnaður veitir meðal annars þjónustu við að greiða niður skuldir, auka eignamyndun og styrkja fjárhagslegt öryggi viðskiptavina. Sparnaður er í nánu samstarfi við við þýska tryggingarfélagið Versicherungskammer Bayern (Bayern Líf), sem tilheyrir hópi fjármálafyrirtækja þýsku sparisjóðanna er hafa yfir 50 milljónir viðskiptavina.
UM SKÝRR EHF.
Skýrr ehf. er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni og býður atvinnulífinu heildarlausnir í hugbúnaði og rekstrarþjónustu undir kjörorðunum ”Allt á einum stað”. Fyrirtækið hefur yfir 200 starfsmenn og liðlega 2.000 viðskiptavini. Meðal samstarfsaðila Skýrr í þekkingariðnaði eru Microsoft, Oracle, VeriSign og Business Objects. Skýrr er vottað samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ISO 9001.




