15 July 2009
Sparnaður hefur opnað útibú að Kaupvangsstræti 1, Akureyri (RÚV húsinu, jarðhæð). Opnunartími skrifstofu Sparnaðar á Akureyri er frá klukkan 10:00 til 18:00 alla virka daga. Fimmtudaginn 18. júní mun Sparnaður vera með opið hús og bæjarbúum er boðið upp á léttar veitingar á skrifstofu Sparnaðar milli klukkan 18:00 – 19:30. Ingólfur H. Ingólfsson mun síðan halda fyrirlestur í Brekkuskóla frá kl. 20:00 til 22:00 þátttakendum að kostnaðarlausu. Staðfesta skal þátttöku með tölvupósti á sparnadur@sparnadur.is eða með því að hringja í 577-2025.




