Sparnaður og Heilsuvernd hefja samstarf


25 February 2010

Þann 22. febrúar hófst samstarf Sparnaðar ehf. og Heilsuverndar ehf. (www.hv.is) um að bjóða viðskiptavinum Sparnaðar betri kjör ásamt góðu aðgengi að persónulegri heilbrigðisþjónustu.

Heilsuvernd veitir þjónustu á sviði heilsuverndar, vinnuverndar og heilbrigðisþjónustu. Stefna Heilsuverndar er að veita faglega þjónustu sem er löguð að þörfum viðskiptavinarins og hefur jákvæð áhrif á lífsgæði fólks. Heilsuvernd býður upp á heildarlausnir á sviði heilbrigðisþjónustu, vinnuverndar, heilsuverndar, heilsueflingar, símaráðgjafar, fjarvistaskráningar og fræðslu.

Læknamóttaka Heilsuverndar er til húsa í Holtasmára 1 í Kópavogi, sama húsi og höfuðstöðvar Sparnaðar.

Samstarfið er mikilvægt skref í þá átt að stuðla að almennri velferð viðskiptavina Sparnaðar því að sjaldan hefur það verið mikilvægara en nú að einstaklingar hugi að bættri heilsuvernd. Sparnaður veitir einstaklingum ráðgjöf um hagkvæmari rekstur heimilanna ásamt trygginga- og lífeyrisráðgjöf.

Sjá nánar gjaldskrá vegna samstarfsins til viðskiptavina SPARNAÐAR.

Gjaldskrá HVSP