Sparnaður ehf. (Sparnaður) og Deloitte hf. (Deloitte) gerðu með sér samning um innri endurskoðun þann 21. desember 2009. Í samræmi við samninginn var gerð innri endurskoðunaráætlun þann 21. desember 2009 um áætlað umfang verkefnisins. Vinna sérfræðinga Deloitte miðast við reglur Fjármálaeftirlitsins (FME) nr. 687/2001 um endurskoðunardeildir og eftirlitsaðila lífeyrissjóða og minnisblað FME um innri endurskoðun (umboðsaðila) vörsluaðila séreignarsparnaðar, annarra en lífeyrissjóða, sem sent var Sparnaði þann 19. maí 2009. Í minnisblaði FME eru tiltekin fimm atriði sem stjórn (umboðsaðila) vörsluaðila séreignarsparnaðar, aðrir en lífeyrissjóðir, beri að „gera skriflegan samning um við sjálfstætt starfandi eftirlitsaðila um framkvæmd á innra eftirliti“.
Deloitte er alþjóðlegt fyrirtæki, sem býður upp á sérhæfða þjónustu og ráðgjöf á sviði endurskoðunar og reikningsskila, ásamt fjármálaráðgjöf, skatta- og lögfræðiráðgjöf og ráðgjöf á sviði áhættuþjónustu (ERS), þ.m.t. innri endurskoðunar. Fyrirtækið er aðildarfélag að Deloitte Touche Tohmatsu (“DTT”).
Starfsmenn Deloitte sem sinna innri endurskoðun eru endurskoðendur, innri endurskoðendur og viðskiptafræðingar, ásamt tölvusérfræðingum. Innri endurskoðunarþjónustan er aðskilin frá annarri starfsemi Deloitte og koma starfsmenn hennar á engan hátt að annarri þjónustu sem félagið kann að veita viðkomandi viðskiptavini. Innri endurskoðunarþjónusta Deloitte hefur meðal annars sérhæft sig í innri endurskoðun lífeyrissjóða og þar með félaga sem starfa sem umboðsmenn séreignasparnaðar. Á síðastliðnum árum hefur Deloitte sinnt innri endurskoðunarþjónustu fyrir fjölmarga lífeyrissjóði; þar af marga af stærstu lífeyrissjóðum landsins.




