SPARNAÐUR OG HEILSUVERND VERÐA MEÐ KYNNINGARBÁS Á SÝNINGUNNI HEILSAN 2010


10 September 2010

heilsuvernd-og-doktor-isicon-sparnadur 

 

 

 

 

 

SPARNAÐUR OG HEILSUVERND VERÐA MEÐ KYNNINGARBÁS Á SÝNINGUNNI Í SMÁRALIND HELGINA 11.-12. SEPTEMBER.

Heilsan er mikilvægur liður til betri lífsgæða. Það lengir ekki einungis lífið að huga vel að heilsunni heldur eru lífsgæði og vellíðan mikilvægir þættir sem hafa samverkandi áhrif á félagslega stöðu, fjölskyldulíf og starf. Heilbrigði í fjármálum og reglulegt eftirlit með heilsunni er lykillinn að betra lífi.

Heilsa, húð og hár 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind

Stórsýningin Heilsa, húð og hár verður haldin laugardaginn 11. og sunnudaginn 12. september í Vetrargarðinum í Smáralind.

Sýningin spannar allt heilsusviðið og verður einstaklega fjölbreytt og lifandi.

Fyrirtæki úr öllum heilsugeirum kynna þar vörur sínar og þjónustu fyrir sýningargestum. Það verður frítt inn á sýninguna sem er opin frá kl. 11.00 til 18.30 á laugardag og 12.00 til 18.30 á sunnudag.

Á sýningunni verður mikið um tilboð á heilsuvörum og þjónustu er tengist heilsu, húð og hári. Þá verður vegleg fyrirlestradagskrá með fjölda fyrirlestra sem líka verður frítt inn á.

Sýningargestum gefst þarna einstakt tækifæri til að kynnast öllu því helsta og nýjasta sem er á boðstólnum á sviði heilsu og fegurðar.