Sparnaður og TM hefja sölusamstarf


07 January 2010

Þann 5. janúar 2010 var undirritaður samstarfssamningur milli Sparnaðar og Tryggingamiðstöðvarinnar um sölu á vörum þeim sem samningsaðilar hafa að bjóða.

Tryggingamiðstöðin er veitir alhliða þjónustu á sviði einstaklings- og fyrirtækjatrygginga. Hjá TM starfar um 130 manna samhentur hópur sem hefur það markmið að veita góða þjónustu á mannlegum nótum þar sem þörfum hvers og eins er mætt af sanngirni. Umboðsskrifstofur Tryggingamiðstöðvarinnar eru 22 talsins víðs vegar um landið.

Með samstarfinu geta báðir aðilar boðið viðskiptavinum sínum víðtækara vöruframboð á sviði vátrygginga- og fjármálaþjónustu og þar með lágmarkað áhættu viðskiptavina sinna á fjárhagslegum áföllum.

Sparnaður og TM hefja sölusamstarf

Frá vinstri til hægri: Ragnheiður Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingsþjónustu TM, Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, Gestur Breiðfjörð Gestsson, framkvæmdastjóri Sparnaðar, Davíð Tryggvason, markaðsstjóri Sparnaðar