Sparnaður styrkir söfnunar- og árveknisátakið Bleika Slaufan 2010


01 October 2010

Sparnaður styrkir söfnunar- og árveknisátak Krabbameinsfélags Íslands með kaupum á rafrænu slaufunni. Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum.

Ragnheiður I. Margeirsdóttir sigraði í samkeppni um hönnun Bleiku slaufunnar í ár.

Tilgangur Bleiku slaufunnar 2010 er að vekja athygli á konum og krabbameini og er árveknisátak til að huga að vörnum gegn krabbameini, ekki síst brjóstakrabbameini sem er algengasta krabbameinið hjá konum.

Hægt er að kaupa Bleiku Slaufuna m.a. hjá eftirtöldum söluaðilum: Frumherji, Garðheimar, Hreyfill, Íslandspóstur, Kaffitár, Lyfjaval, Lyfja, Lyf og heilsa, Melabúðin, Nóatún, Samkaup, Te & kaffi, Þín verslun.

Nánari upplýsingar um átakið fást að neðan:

www.krabb.is og www.facebook.com/bleikaslaufan

Sparnaður styrkir söfnunar- og árveknisátakið Bleika Slaufan 2010