Starfsmenntaáætlun Sparnaðar og Bayern Líf


28 March 2008

Í upphafi samstarfs Sparnaðar og Bayern Líf var ákveðið að leitast við að veita viðskiptavinum faglega ráðgjöf í þeim vörum sem boðið verður upp á. Um síðustu áramót gekk í gildi starfsmenntaáætlun fyrir ráðgjafa Sparnaðar. Þessi áætlun verður endurnýjuð árlega, með tilliti til nýrra reglugerða og breytinga sem kunna að verða á trygginga og fjármálamörkuðum á Íslandi og í Þýskalandi. Starfsmenntunin fer fram á Íslandi í gegnum innranet Bayern Líf í Þýskalandi og á árinu 2009 taka ráðgjafar matspróf og tvenn stigspróf. Bayern Líf ,,Versicherungskammer Bayern” er eitt virtasta tryggingafélag Þýskalands og er í eigu einnar traustustu fjármálasamsteypu Þýskalands.