Fréttatilkynning 17092010
FRÉTTATILKYNNING
Útreikningar á áhrifum dóms Hæstaréttar á gengistryggð lán
Á vefsíðu Sparnaðar ehf, www.sparnadur.is, er að finna reiknivél sem reiknar út áhrif dóms Hæstaréttar á gengistryggð bíla- og fasteignalán.
Athygli er vakin á því að í mörgum tilvikum getur lántaki þurft að greiða til baka vangreidda vexti. Það er ekki vitað hvernig farið verður með vangreiðsluna en reiknivélin reiknar hana engu að síður út og gerir ráð fyrir að á hana leggist kjörvextir Seðlabankans en ekki refsivextir.
Til upplýsinga og frekari glöggvunar á þýðingu hæstaréttardómsins eru lánin reiknuð út miðað við fjóra kosti:
- Ef gengistryggð lán væru lögleg.
- Ef samningsvextir hefðu verið látnir standa allan lánstímann.
- Ef vöxtum hefði verið breytt í verðtryggða vexti Seðlabanka.
- Miðað við breytilega óverðtryggða vexti Seðlabanka.
Reiknivél Sparnaðar er hugsuð sem framlag til upplýstrar umræðu um niðurstöðu Hæstaréttar á gengistryggð lán til einstaklinga.
Ingólfur H. Ingólfsson
Stjórnarformaður Sparnaðar ehf
690-2330




